Endurkröfuréttur korthafa
Vegna gjaldþrots flugfélagsins Play og stöðvunar á starfsemi þess vill Aur upplýsa korthafa um eftirfarandi:
Handhafar Visa greiðslukorta, bæði debet- og kreditkorta, eiga almennt rétt á endurkröfu ef fyrirframgreidd þjónusta, sem greidd var með korti, er ekki veitt.
Til að hægt sé að afgreiða endurkröfubeiðni þurfa korthafar að fylla út eyðublað og senda það með tölvupósti á aur@aur.is.
Við bendum á að nauðsynlegt er að hafa tiltækt afrit af bókun sem inniheldur eftirfarandi upplýsingar:
Bókunarnúmer og staðfesting á greiðslu
Fjölda farþega
Dagsetningu flugs
Brottfararstað og áfangastað
Athugið
Afgreiðsla endurkröfumála getur tafist í ljósi aðstæðna. Við hvetjum því korthafa til að senda inn endurkröfubeiðni sem fyrst.
Tímafrestur til að óska eftir endurkröfu er 120 dagar frá upphaflegri dagsetningu flugs.
Korta- og ferðatryggingar bæta ekki tjón sem verður vegna gjaldþrots flugfélags.
Ef ferðin var bókuð í gegnum ferðaskrifstofu skal hafa beint samband við viðkomandi skrifstofu.
Frekari upplýsingar má finna á vef Samgöngustofu.