Aur Ferðatrygging

Farðu áhyggjulaus í frí með Aur Ferðatryggingu

Skilmálar

Sjúkrakostnaðar­trygging erlendis

Þú veikist eða slasast erlendis

Tryggingin bætir:

    læknis- og lyfjakostnað ef þú þarft að leita til læknis erlendis.
    Innifalin er aðstoð SOS, sem er sérhæfð alþjóðleg neyðarþjónusta.

Tryggingin bætir ekki:

    Lyf án læknisráðs eða kostnað vegna sjúkdóma sem má rekja til misnotkunar vímuefna.
    Kostnað vegna langvinna sjúkdóma og slysa sem þú hefur fengið læknishjálp við á seinustu 6 mánuðum fyrir bókun ferðar. Kostnað vegna hvers kyns slysa, veikinda og sjúkdóma, sem þú  hefur notið læknishjálpar og/eða meðferðar við á síðustu 6 mánuðum fyrir bókun ferðar.

Ferðaslysatrygging

Þú verður fyrir slysi á ferðalagi sem leiðir til varanlegra örorku

Tryggingin bætir:

    Dánarbætur ef slys leiðir til andláts
    Bætur vegna varanlegs líkamstjóns
    Nauðsynlega tannlæknaþjónustu vegna slyss eða til að lina þjáningar.

Tryggingin bætir ekki:

    Slys sem verður í handalögmálum eða við þátttöku í refsiverðum verknaði.
    Þátttöku í keppni eða við æfingar fyrir keppni í hvers kyns íþróttum fyrir eldri en 16 ára

Ferðarofstrygging

Kostnað vegna heimferðar til Íslands vegna alvarlegra veikinda eða andláts nánustu ættingja þinna.

Tryggingin bætir:

    Viðbótarkostnað vegna heimferðar til Íslands vegna alvarlegra veikinda eða andláts nánustu ættingja.
    Viðbótarkostnað vegna verulegs eignatjóns á heimili þínu eða einkafyrirtæki, sem gerir nærveru þína  nauðsynlega.

Tryggingin bætir ekki:

    Nýja utanlandsferð í stað þeirrar sem var rofin.

Farangurstrygging

Farangri þínum er stolið

Tryggingin bætir:

    Ef farangurinn þinn týnist alveg í flutningi á leið til útlanda eða verður fyrir skemmdum.
    Tjón vegna þjófnaðar, ráns eða innbrots erlendis.

Tryggingin bætir ekki:

    Skemmdir á ferðatöskunni sjálfri sem rýra ekki notagildi þess sem skemmist
    Hlutir sem þú gleymir, týnir eða skilur eftir á almannafæri

Farangurs­tafartrygging

Farangur þinn er lengi að skila sér á áfangastað erlendis

Tryggingin bætir:

    Ef ferðataskan þín skilar sér ekki á áfangastað erlendis innan 12 klukkustunda.

Tryggingin bætir ekki:

    Ef taskan þín er lengi að skila sér þegar þú ert á heimleið.

Forfallatrygging

Þú kemst ekki í ferðina vegna veikinda

Tryggingin bætir:

    Ferðakostnað ef þú kemst ekki í ferðalag til útlanda, til dæmis vegna skyndilegra veikinda eða slyss.

Tryggingin bætir ekki:

    Ef ferðin er keypt eftir að slys verður eða veikindi koma upp
    Kostnað sem fæst endurgreiddur frá ferðaskrifstofu eða flugfélagi

Samfylgd í neyð

Nauðsynlegan ferðakostnað náins ættingja vegna slyss eða veikinda hjá þér.

Trygging bætir:

     Nauðsynlegan ferðakostnað vegna ættingja eða vinar sem dvelur hjá þér eða fylgir þér heim samkvæmt læknisráði og í samráði við SOS INTERNATIONAL eða TM, vegna alvarlegs slyss eða veikinda þinna.  

Trygging bætir ekki:

    Kostnað sem má rekja til þess að þú máttir vænta þess að fæða barn áður en heim kæmi eða innan tveggja mánaða frá heimkomudegi.
    Kostnað sem má rekja til þess að þú ferðast í trássi við ráðgjöf starfandi læknis, eða í þeim tilgangi að leita læknismeðferðar erlendis.
    Kostnað vegna hvers kyns slysa og veikinda, sem þú hefur notið læknishjálpar og/eða meðferðar við, á síðustu 6 mánuðum fyrir bókun ferðar. 

Endurgreiðsla ferðar

Ef þú þarft að fara fyrr heim eða þarft að liggja á sjúkrahúsi erlendis vegna veikinda eða slyss

Trygging bætir:

    Þann hluta ferðarinnar sem þú getur ekki notað vegna þess að þú þarft að fara fyrr heim samkvæmt  lækni eða þarft að liggja á sjúkrahúsi. 

Trygging bætir ekki:

    Ferð sem varir 5 daga eða skemur.

Ferðatöf

Seinkun á ferðinni vegna verkfalls, veðurs eða vélarbilunar

Trygging bætir:

    Ef verkfallsaðgerðir, óhagstæð veðurskilyrði eða vélarbilun veldur töfum á almenningsfarartæki sem leiðir til seinkunar á komutíma.

Trygging bætir ekki:

    Ef seinkun er minni  en 12 klukkustundir

Ábyrgðartrygging

Þú veldur öðrum tjóni erlendis

Trygging bætir:

    Þau tjón sem þú berð ábyrgð á gagnvart öðrum, bæði líkamstjón og skemmdir á munum

Trygging bætir ekki:

    Tjón sem þú veldur nánum ættingja,  
    Tjón á munum, sem þú hefur að láni eða til leigu
    Tjón vegna bruna 
    Tjón sem þú veldur af ásetningi.